Text
Minning um mann
Höfundur lags: Gylfi Ægisson Höfundur texta: Gylfi Ægisson Flytjandi: Logar
Em G A Am
Nú ætla ég að syngja ykkur lítið fallegt ljóð
Em G B7
um ljúfan dreng sem fallinn er nú frá,
Em G A Am
um dreng sem átti sorgir en ávallt samt þó stóð
Em B7 Em
sperrtur þó að sitthvað gengi á.
Em G A Am
Í kofaskrifli bjó hann, sem lítinn veitti yl,
Em G B7
svo andvaka á nóttum oft hann lá.
Em G A Am
Þá Portúgal hann teygaði, það gerði ekkert til,
Em B7 Em
það tókst með honum yl í sig að fá.
D Em
Þið þekktuð þennan mann, þið alloft sáuð hann.
Em B7 Em
drykkjuskap til frægðar sér hann vann.
Em G A Am
Börnum var hann góður, en sum þó hræddust hann,
Em G B7
þau hæddu hann og gerðu að honum gys.
Em G A Am
Þau þekktu ei, litlu greyin, þennan mæta mann,
Em B7 Em
margt er það sem börnin fara á mis.
D Em
Þið þekktuð þennan mann, þið alloft sáuð hann.
Em B7 Em
drykkjuskap til frægðar sér hann vann.
Em G A Am
Munið þið að dæma ei eftir útlitinu menn,
Em G B7
en ýmsum yfir þessa hluti sést.
Em G A Am
En til er það að flagð er undir fögru skinni enn,
Em B7 Em
fegurðin að innan þykir best.
D Em
Þið þekktuð þennan mann, þið alloft sáuð hann.
Em B7 Em
drykkjuskap til frægðar sér hann vann.
Em G A Am
Nú ljóðið er á enda um þennan sómasvein,
Em G B7
sem að þráði brennivín og sæ.
Em G A Am
Hann liggur nú á kistubotni og lúin hvílir bein
Em B7 Em
í öskuhrúgu í Vestmannaeyjabæ.
D Em
Þið þekktuð þennan mann, þið alloft sáuð hann.
Em B7 Em
drykkjuskap til frægðar sér hann vann.
D Em
Þið þekktuð þennan mann, þið alloft sáuð hann.
Em B7 E
drykkjuskap til frægðar sér hann vann.